Umsóknarferli
Umsóknum um lán á tækjabúnaði Loka verður að skila á útfylltu eyðublaði sem er hér að ofan. Ef þú hefur ekki sótt um áður ráðleggjum við þér að hafa samband áður en þú fyllir út eyðublaðið til þess að fá frekari upplýsingar um umsóknarferlið og lánsskilyrði.
Umsóknir verða lesnar yfir af stjórn Loka. Umsóknir verða aðeins metnar utan þessara funda í undantekningatilfellum. Öllum umsækjendum sem fá aðgang að mælum tækjabankans er skylt að gangast að lánsskilyrðum sem fylgja umsóknareyðublaðinu.
Umsóknarferli
Rannsóknarhópar við allar íslenskar rannsóknastofnanir og fyrirtæki hafa rétt til leigu jarðskjálftamæla úr tækjabankanum, Loka. Upplýsingar um verkefni sem veitt hefur verið aðgangur að tækjum bankans verða birtar á vefsíðum bankans og uppfærðar reglulega. Umsækjendum sem ekki hafa sótt áður um aðgang að tækjum Loka er bent á að hafa samband við umsjónarmann Loka, Ríkeyju Júlíusdóttur (rikey@vedur.is), til þess að afla upplýsinga um hugsanlegar takmarkanir verkefna og verkefnaáætlun. Ef lán er hugsanlegt þarf umsækjandi að fylla út staðlað umsóknareyðublað og skila því bæði á tölvutæku formi (word eða pdf) og undirrituðu á prentuðu formi til umsjónarmanns Loka, þar sem tækja- og tímaþörfum verkefnis er lýst. Slíkar umsóknir verða síðan lesnar yfir af stjórn loka skv matsferli RANNÍS.
Viðmið leigutíma
Tæki Loka verða að jafnaði ekki lánuð til lengri tíma en tveggja ára. Þegar eldri hátíðnibúnaður kemst í gagnið verða útlán hans metin á grunni einstakra verkefna en að jafnaði ekki til lengri tíma en sex mánaða. Öll lánstímabil eru engu að síður sveigjanleg og háð eftirspurn eftir búnaði. Hugsanlegt er að framlengja leigu ef fram á það er farið og tæki eru á lausu. Stjórn Loka áskilur sér rétt til þess að afturkalla tækjabúnað í leigu til þess að sinna mælingum sem tengjast náttúruhamförum enda sé þess gætt að trufla verkefni viðkomandi leigutaka sem minnst og veita lántakanum seinna aðgang að mælunum í þann tíma sem lánstími hans er skertur.
Lánsskilmálar (ref 05/06/08)
1. Stjórn Loka áskilur sér rétt til þess að draga til baka lán tækja ef sérstakar ástæður krefjast. Ef stærri jarðskjálfti á sér stað hafa mælingar á eftirskjálftum forgang fram yfir önnur verkefni skv. ákvörðun stjórnar Loka. Það sama gildir um óróa sem talinn er geta verið aðdragandi eldgoss eða skjálftavirkni eða óróa samfara eldgosi.
2. Lántakendur verða að sýna fram á getu til þess að nota, prófa og framkvæma minniháttar viðgerðir þeirra tækja sem lánuð eru. Starfsmenn Veðurstofu Íslands bjóða notendum þjálfun í notkun tækjanna tímanlega áður en notkun hefst. Þessi þjálfun fer fram á Veðurstofu Íslands.
3. Öllum lántökum er skylt að undirrita eyðublað þar sem þeir þekkjast viðtöku tækjanna í góðu ástandi og samþykkja að meðhöndla tækin með aðgát í flutningi, uppsetningu og notkun. Lántakendum er skylt að tilkynna umsjónarmanni Loka um hvers kyns bilanir, skemmdir eða tap sem tækin kunna að verða fyrir á meðan tækin eru í umsjón þeirra, og, þegar tækjunum er skilað er þeim skylt að skila af sér ítarlegri skýrslu um það hvernig bilanir, skemmdir eða tap áttu sér stað. Ef tækjum er stolið skulu lántakendur tilkynna það til lögregluyfirvalda á staðnum og skila afriti af lögregluskýrslu til stjórnar Loka. Ef stjórn Loka kemst að þeirri niðurstöðu að tjón hafi mátt sjá fyrir og að ekki hafi verið gripið til viðunandi aðgerða eða þar sem grunur liggur á um vanrækslu, verður viðkomandi verkefnastjóra meintur aðgangur að tækjum Loka svo lengi sem stjórn sjóðsins sýnist viðhlýtandi. Veðurstofa Íslands áskilur sér rétt til þess að grípa til viðeigandi aðgerða gegn lántaka sem hefur orðið uppvís að vanrækslu sem hefur leitt til verulegs tjóns. Lántakendum verður kunngjört um endurkaupverð þeirra tækja sem þeir taka að láni. Stofnanir aðrar en opinberar stofnanir sem taka tæki Loka á leigu verða að sýna fram á viðunandi tryggingu tækjanna.
4. Lántakendum er skylt að tilkynna umsjónarmanni Loka við fyrsta tækifæri þegar ástæða er til þess að efast um að þeir nái að skila tækjunum í fullnægjandi ástandi á tilsettum tíma. Lántaki sem hunsar þessa skyldu á á hættu að vera gerður ábyrgur fyrir því tjóni sem sem næsti lántaki tækjanna kann að verða fyrir vegan tafa. Lántakendur skuldbinda sig til þess að skila öllum lánuðum tækjabúnaði í fullnægjandi ástandi og á tilsettum tíma.
5. Lántakendum er skylt að skila eftirfarandi skýrslum til umsjónarmanns Loka. Þeim ber að skila á tölvutæku formi (á PDF eða Word formi) og á prentuðu formi, sérstaklega ef litir eru notaðir.
i) Innan tveggja vikna eftir lokadag: Útfyllt tækjaskilayeðublað ásamt skýrslu um bilanir, skemmdir og tjón og allar þær breytingar sem gerðar hafa verið á tækjum án samráðs við umsjónarmann Loka.
ii) Innan árs frá Lokadegi: Fullbúin vísindaskýrsla þar sem fram kom framgangur verkefnisins og helstu vandamál. Skýrslan skal ekki vera lengri en 6 A4 síður (þar með taldar myndir, kort og tilvísanir) og ætti að öllu jöfnu að innihalda eftirfarandi:
Ágrip
Bakgrunnur (kort af rannsóknarsvæði)
Framkvæmd mælinganna
Gagnagæði (með dæmum)
Gagnameðhöndlun og úrvinnsla
Túlkun niðurstaðna (að svo komnu máli)
Frumniðurstöður
Ályktanir og ráð
Birtingar (áætlaðar, í vinnslu, innsendar, samþykktar birtar)
Stjórn Loka hefur first og fremst áhuga á að tækin voru rétt notuð og að úr gögnum var unnið með hagkvæmum hætti. Ástæðulaust er að tefja skil vísindaskýrslu vegna ófullbúinnar vísindavinnu. Skýrslur lántakenda verða birtar á vefsíðum Loka, nema undir sérstökum kringumstæðum þar sem fram á það er farið.
iii) Þegar verkefni er lokið ber verkefnisstjóra að skila til umsjónarmanns Loka afriti af lokaskýrslu verkefnisins (til beinna styrktaraðila) og öllum birtingum sem komið hafa út vegna verkefnisins. Þessum skýrslum og birtingum ber að geta og þakka með eðlilegum hætti lán tækja úr tækjabanka Loka.
6. Stjórn Loka áskilur sér rétt til þess að leita eftir frekari upplýsingum ef hún telur upplýsingum í skýrslum verkefnisstjóra ábótavant. Hugsanlegt framtíðarlán verkefnisstjóra á tækjum Loka er háð tímanlegum skilum þessarra skýrslna á fullnægjandi formi og umsögn um þær.
