Jarðskjálftamælabankinn
Loki

Jarðskjálftamælabankinn Loki er tækjabanki sem á og leigir út færanlega jarðskjálftamæla, til vísindarannsókna, til eigenda sinna og samstarfsaðila þeirra.. Hann er í eigu Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands og Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR).

Yfirumsjónarmaður mælabankans er Kristín S. Vogfjörð (vogfjord@vedur.is) og starfsmaður bankans er Ríkey Júlíusdóttir (rikey@vedur.is).

 RANNÍS er aðalstyrktaraðili jarðskjálftamælabankans en einnig styrkja Orkuveita Reykjavíkur, Landsvirkjun og Viðlagatrygging Íslands bankann.

Um tækin

Loki á fjölbreytt tæki til jarðskjálftarannsókna. Mikilvægt er að lántakandi hafi góða þekkingu á tækjunum og geti ábyrgst rétta meðferð við notkun þeirra.