Reglur Loka jarðskjálftamælabanka

  1. Loki er sameiginlegur tækjabanki Veðurstofu Íslands (VÍ), Jarðvísindastofnunar Háskólans (JH), Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR) og Háskólans í Reykjavík til jarðskjálftamælinga með færanlegum tækjabúnaði.   Stofnanirnar eiga jafnan hlut í tækjabankanum en hann hefur aðsetur á Veðurstofu Íslands,  sem jafnframt annast rekstur hans.
  2. Stjórn Loka skipa fulltrúar allra fjögurra eignarstofnana, einn aðalmaður og einn til vara frá hverri stofnun.
  3. Einn starfsmaður VÍ er skipaður umsjónarmaður Loka og situr hann stjórnarfundi tækjabankans.  Viðskipti lántaka við tækjabankans er beint í gengum umsjónmarmann.  Einn starfsmaður VÍ er skipaður tæknilegur umsjónarmaður Loka með það hlutverk að annast tæknilega ráðgjöf um notkun tækjanna og viðhald þeirra.
  4. Stjórn Loka hittist þegar þurfa þykir til þess að fjalla um umsóknir um lán úr bankanum.  Auk þess fjallar stjórn Loka um viðhald tækja bankans, umsóknir um frekari tækjakaup til bankans og önnur mál sem tengjast rekstri hans.
  5. Gjaldskrá Loka er ákvörðuð af stjórn og þarf samþykki allra til breytinga hennar.  Gjaldskráin endurskoðast árlega og skal auglýst á vefsíðu Loka.  Gjaldskráin skal miðast við kostnað til þess að standa undir viðhaldi og afföllum tækjabúnaðarins.
  6. Matsferli umsókna um leigu tækja Loka er í höndum stjórnar og tekur mið af matsferli Rannís við umfjöllun umsókna til sjóða Vísinda og Tækniráðs.   Stjórn Loka getur leitað umsagnar utanað komandi sérfræðinga um einstaka umsóknir.  Skal þá farið með umsóknina sem trúnaðarmál.
  7. Mælingar eftirskjálfta eftir stærri jarðskjálfta og mælingar gosóróa eða skjálftavirkni sem tengist eldgosum hafa forgang umfram önnur verkefni skv. ákvörðun stjórnar Loka.  Stjórnin áskilur sér rétt til þess að afturkalla tæki bankans úr öðrum verkefnum til þess að sinna slíkum forgangsverkefnum enda sé þess gætt að raska öðrum verkefnum sem minnst og bæta leigutökum styttingu lánstíma eftir á.
  8. Loki heldur gagnabanka yfir öll mæligögn sem safnast með tækjum bankans.  Lántakendum er skylt að skila öllum gögnum á mseed formi ásamt logg og villuskrám innan tveggja ára frá lokadegi láns.  Vilji lántakandi skila gögnunum fyrr ábyrgist Loki að gögnin verði lokuð fram að skiladegi gagnanna sé það ósk lántakanda.
  9. Lántakanda er ekki heimilt að opna innsigli mælitækjanna.   Komi upp bilun í tækjabúnaði er lántakanda heimilt að gera við svo fremi að viðgerðin krefjist ekki þess að tækin verði opnuð og einungis í fullu samráði við tæknilegan umsjónarmann Loka.
  10. Samróma samþykki stjórnar þarf til breytinga á reglum þessum.